Sjóvá: Ársuppgjör 2023 verður birt 8. febrúar - kynningarfundur sama dag kl. 16:15

Sjóvá-Almennar tryggingar hf. birtir ársuppgjör fyrir árið 2023 og fjórða ársfjórðung 2023 eftir lokun markaða fimmtudaginn 8. febrúar nk.

Kynningarfundur í fundarsal félagsins í Kringlunni 5 og í vefstreymi

Markaðsaðilum og fjárfestum er boðið á kynningarfund í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð þann 8. febrúar nk. kl. 16:15. Þar munu Hermann Björnsson forstjóri, Sigríður Vala Halldórsdóttir framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni og Þórður Pálsson forstöðumaður fjárfestinga kynna uppgjörið. Kynningunni verður jafnframt streymt á slóðinni  https://www.sjova.is/um-okkur/fjarfestar/afkomukynning-4f-2023/ .

Vilji aðilar bera upp spurningar má senda þær á netfangið fjarfestar@sjova.is fyrir fundinn eða á meðan á útsendingu stendur og verður þeim svarað í lok kynningarinnar.

Uppgjörsefni verður aðgengilegt á vef Sjóvár www.sjova.is/fjarfestar frá þeim tíma er kynningin hefst og verður upptaka af fundinum aðgengileg á sömu síðu að fundi loknum.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving Thorsteinsson, í síma 869-8109 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is


Sjova-almennar Trygginga... (LSE:0QS8)
과거 데이터 주식 차트
부터 4월(4) 2024 으로 5월(5) 2024 Sjova-almennar Trygginga... 차트를 더 보려면 여기를 클릭.
Sjova-almennar Trygginga... (LSE:0QS8)
과거 데이터 주식 차트
부터 5월(5) 2023 으로 5월(5) 2024 Sjova-almennar Trygginga... 차트를 더 보려면 여기를 클릭.