VÍS: Endanlega dagskrá og tillögur til hluthafafundar árið 2023
07 6월 2023 - 11:08PM
VÍS: Endanlega dagskrá og tillögur til hluthafafundar árið 2023
Stjórn Vátryggingafélags Íslands hf. hefur boðað til
hluthafafundar sem haldinn verður í höfuðstöðvum félagsins að
Ármúla 3, 108 Reykjavík, miðvikudaginn 14. júní kl. 16:00, en auk
þess verður boðið upp á rafræna þátttöku.
Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að
sækja hluthafafundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum,
eru beðnir um að skrá sig á vefsíðunni:
-
https://www.lumiconnect.com/meeting/visegm2023
Frestur til að skrá sig er til kl. 16:00 þann 12. júní,
eða tveimur dögum fyrir hluthafafundinn. Með innskráningu þarf að
fylgja mynd af skilríkjum og umboð, ef við á.
Endanleg dagskrá fundarins er í viðhengi. Öll gögn vegna
hluthafalfundar, s.s. ályktunartillögur stjórnar og greinargerð með
þeim, kynning vegna hluthafafundar, skýrslu stjórnar vegna
hlutafjárhækkunar, umsögn löggilts endurskoðanda og skýrslu
löggilts endurskoðanda, má finna á vefsíðu félagsins.
Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir,
samskiptastjóri, í s. 660 5260 eða með
tölvupósti fjarfestatengsl@vis.is
- Fundarboð 2023 - endanleg dagskrá
Vis Insurance (LSE:0QDY)
과거 데이터 주식 차트
부터 4월(4) 2024 으로 5월(5) 2024
Vis Insurance (LSE:0QDY)
과거 데이터 주식 차트
부터 5월(5) 2023 으로 5월(5) 2024